Hvað sagði Þorgeir á Alþingi?

Fyrir kemur að fólk leitar til sagnfræðilegra fordæma til þess að styðja málflutning sinn. Fyrir nokkru las ég að Þorgeir Ljósvetningagoði hefði talað fyrir umburðarlyndi og fjölmenningu er hann lagði fram málamiðlun þá að dugði til að Íslendingar tækju upp kristinn sið. 

Ef til vill má lesa þessa meiningu út úr orðum Ljósvetningagoðans, heiðna höfðingjans sem beðinn var um að mæla fyrir lausn sem allir gætu sætt sig við.

Kjarninn í máli hans var á þessa leið:

  • Allir skulu skírn taka
  • Blóta má áfram en í laumi
  • Útburður barna leyfður áfram
  • Hrossakjötsát leyft áfram

Svo mæltist honum: "En nú þykir mér það ráð, að vér látim og eigi þá ráða, er mest vilja í gegn gangast, og miðlum svo mál á milli þeirra, að hvorirtveggju hafi nokkuð síns máls, og höfum allir ein lög og einn sið. Það mun verða satt, er vér slítum í sundur lögin, að vér munum slíta og friðinn.“

Ein lög og einn sið, annað er til þess gert að stuðla að óróa og sundrung.

Mælti Þorgeir fyrir því að menn tækju upp alls konar siði og alls konar lög?

 

 


« Síðasta færsla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband