Álitamál um trúnað og traust

Ekki er laust við að manni þyki sem menn séu farnir að seilast ansi langt til að koma höggi á pólitíska andstæðinga. Ljóst er orðið að gögn þau sem vikið er að í fréttinni voru látin þingmönnum í té og þess væntanlega getið að þau væru trúnaðargögn. Sá sem hefur komið þessu í almenna birtingu hefur brotið gegn þeirri skyldu sem hann hefur undirgengist sem kjörinn fulltrúi landsmanna á löggjafarsamkomunni. Viðkomandi hefur brugðist, hann er "a failure".

Þetta er náttúrlega í anda þeirrar leyndarhyggju, sem verið er að gagnrýna í sömu andránni, og birtist líka í því að menn gusa alls konar óþverra frá sér, gjarnan í nafnlausum skeytum á öldum ljósvakans eða í netheimum. Sá þingmaður sem kom þessu á framfæri, í gegnum "anonymous" póst, mun örugglega ekki hafa til að bera þann manndóm að koma fram undir nafni.

Það var greinilega fleira en bankakerfið sem fór til andskotans í Hruninu Smile


mbl.is Icesave-póstar á Wikileaks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þú ert greinilega sammála Davíð Oddsyni sem sagði um "Litla símamanninn" :  "Við skulum ekki gera hetju úr þessum manni" 

Sigurður Þórðarson, 7.12.2009 kl. 11:31

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ef einhver hefur brugðist varðandi öryggi þessara upplýsinga þá er það Indriði. Fyrir það fyrsta þá vita allir sem hafa snefil af þekkingu á tölvuöryggi að almennur tölvupóstur án dulkóðunar er álíka öruggur og að senda póstkort um yfirráðasvæði "óvinarins". Flestar rafrænar samskiptaleiðir til og frá Íslandi liggja nefninlega gegnum Bretland þar sem leyniþjónusta hennar hátignar situr við hlerunartækin. Til að bíta höfuðið af skömminni þá vísar Indriði í lok skeytisins á sitt einkanetfang (...@mac.com) sem er hýst utan íslenskrar lögsögu og fellur ekki undir skráningarkerfi stjórnarráðsins. Samskipti með þeim hætti eru því rafrænt ígildi þess að eiga leynifundi á afviknum stöðum.

Að hugsa sér að menn skuli viðhafa svona hörmulega vond vinnubrögð í einu stærstu hagsmunamáli íslensku þjóðarinnar frá upphafi!

Guðmundur Ásgeirsson, 7.12.2009 kl. 12:37

3 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Þakka fyrir viðbrögðin. Tek ekki afstöðu til þess að sinni,  hvort það er vont eða gott að hreinsa upp eftir Landsbankann í útlöndum. Finnst að maður eigi að geta treyst háttsettum embættismönnum eins og þingmönnum og embættismönnum hins opinbera til að vanda sig í hvívetna.

Flosi Kristjánsson, 7.12.2009 kl. 13:15

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll Flosi og aðrir.

 Það hefur komið fram í máli forsætisráðherra Breta að þeir muni nota AGS til að rukka Íslendinga.  Það hefur einnig komið fram í máli Steingríms að AGS hafi rækt það hlutverk. Hvað eru háttsettir embættismenn að senda handrukkurum trúnaðarupplýsingar?  Við eigum að vera þakklátt Wikileak fyrir að leka þessu og ekki síður þeim mönnum sem komu þessu til Wikileak. 

Sigurður Þórðarson, 7.12.2009 kl. 13:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband